Að greina samkeppnisaðstæður og markhópa ásamt því að ógnanir og tækifæri eru skilgreind er gríðarlega mikilvægt. Vefgreining og rétt viðmótshönnun með skilgreinda markhópa í huga er grundvöllur árangursríkrar notkunar vefsins. Með því að þekkja viðskiptavini sína má finna leiðir til þess að ná forskoti á samkeppnisaðila skilgreina stefnu og setja markmið

 

Hvort sem um er að ræða endvefvæðingu eða nýja vefi skiptir öllu máli að réttu skrefin séu tekin út frá forsendum viðskiptavina

 

Skref 1: Tæknileg úttekt á vefkerfi m.t.t. leitarvélarbestunar

  • Uppsetning vefs og keyrsla
  • Stjórnborð vefs
  • Uppsetning skjala
  • Notkun Lýsigagna og textaskrif
  • Innsetning greiningartóls
  • Hvaða úrbætur þarf, þ.m.t.
  1. Hugsanlegt val á nýju vefkerfi og innleiðing þess
  2. Betri nýting vefkerfis til markaðssetningar
  3. HMTLun, uppsetning vefþjóna ásamt öðrum innri þáttum

Skref 2: Ráðgjöf/eftirfylgni

  • Núverandi markaðsstyrkur skoðaður og tækifæri metin
  • Stefnumótun og markaðsgreining fyrir vefinn
  • Markhópar og markmið með markaðssetningunni skilgreindir
  • Samkeppnisaðilar á netinu skilgreindir
  • Leitarfrasar markhópa skilgreindir, lykilorð og frasar ákveðnir
  • Tillögur að uppbyggingu vefsins miðað við stefnumótun og ímynd, markhópa, samkeppnisaðila, samstarfsaðila og aðra notendur vefsins
  • Tillögur að uppbyggingu vefsins fyrir leitarvélar
  • Hönnun innri og ytri tengla vefsins
  • Farið yfir mikilvægustu þætti með vef- og/eða markaðsstjóra, hvernig á að byggja upp árangursíka heimasíðu m.t.t. markaðssetningar á Internetinu
  • Aðferðir ákvarðaðar við mat á frammistöðu (conversion rate - greiningartól)
  • Tímaáætlun sett fyrir stöðumat og endurskoðun árangurs
  • Farið yfir tölur og upplýsingar úr greiningartóli reglulega

Öllum úttektum er skilað í formi skýrslu sem sýnir stöðuna og með tillögum til nýrra tækifæra við notkun vefsins og markaðssetningu á Netinu.

 

Hafið samband við okkur til að fá frekari upplýsingar info [at] nordicemarketng.is eða síma 540 9500