Nordic eMarketing býður markvissar auglýsingamælingar í gegnum Indextools vefgreiningartólið. Kerfið getur bæði unnið sjálfstætt og sem hluti af öðrum kerfum sem fyrirtæki eru að notast við fyrir.
Í Indextools er innbyggt gríðarlega öflugt auglýsingamælitæki þar sem greina má virkni vefauglýsinga, borða, greiddar skráningar (PPC) og tölvumarkpóst. Kerfið má tengja beint í viðskiptamanna- og/eða vörukerfi auglýsanda og þannig mæla upphafspunkt söluferlis og skoða umbreytingu í viðskipti.
Kerfið er byggt á alþjóðlegum stöðlum (Web Analytics Association) og hefur hjálpað þúsundum fyrirtækja um allan heim við auglýsingamælingar og bestun árangurs. Nú þegar nota yfir 150 fyrirtæki á íslandi kerfið sér til halds og trausts.
Hjá Nordic eMarketing starfa sérfræðingar sem unnið hafa við árangursmælingar víða um heim á mörgum tungumálum og þekkja vel hvernig á að vinna auglýsingar og ná tilætluðum árangri.
Nokkrir lykilþættir í þessarri þjónustu okkar eru:
1. Ráðgjöf við hönnun auglýsingaborða
2. Val á auglýsingaplássi og bókanir (Innan- sem utanlands), t.d. borða, PPC og CPM
3. Virknimæling
4. Tenging við viðskiptamanna-, sölu- og birgðakerfi
Notaðu tólið frítt og taktu upplýsta ákvörðun um framhaldið. Indextools er þjónustað af Nordic eMarketing og sérfræðingum Indextools.
Verð frá 6500 + vsk fyrir mánuðinn