Vefgreiningartæki

Vefgreiningartæki fyrir heimasíður

Yahoo! Web Analytics

Innskráning í Yahoo! Web Analytics


Hvers vegna skiptir máli að velja rétt vefgreiningartól?
Of einfalt er að kalla Yahoo! Web Analytics Tools "teljara". Yahoo! Web Analytics er frekar samansafn sérhæfðra tóla sem hjálpa þér við að ná viðvarandi árangri á Netinu og talning er bara eitt af þeim. Yahoo! Web Analytics er einfalt og gegnsætt greiningarkerfi sem veitir nákvæmar upplýsingar um hegðun þeirra sem heimsækja vefinn þinn.  Yahoo! Web Analytics hjálpar þannig markaðsstjórum og vefstjórum að auka sölu, draga úr markaðskostnaði og hvetja væntanlega viðskiptavini til að staldra við á vefnum. Öflugt vefgreiningartól er gríðarlega mikilvægt til að mæla árangur og nauðsynlegt ef greina á markaðsherferðir ofan í kjölinn.

 

Indextools Auglýsingamælingar - Einföld og árangursrík leið til að besta árangur auglýsingaherferða.

 

 Sækja upplýsingar um Yahoo! Web Analytics á Íslensku (is)

 

Yahoo! Web Analytics (teljari - vefgreinir) - Enterprise Útgáfa

Einstakt viðmót og eiginleikar sem eiga engan sinn líkan í neinu sambærilegu tóli. Eftirfarandi sameinast allt í nýjustu Enterprise útgáfu vefgreiningatólsins Yahoo! Web Analytics:

   Sérsniðnar skýrslur og vaktanir
Sérsniðnar skýrslur samkvæmt þinni viðmiðun. Notaðu "Wizard" til að draga og sleppa mælieiningum í þinni skýrslu og gerðu þannig margþætta skýrslu um atriði eins skilun á Netmarkaðssetningu (ROI) og auglýsingaborðaherferðum. Ef þér líkar síðan niðurstöðurnar getur þú bókamerkt hana og látið kerfið vakta til frekari eftirfylgni.
Segmentation   Rauntíma sundurliðun á umferð
Greindu hvernig mismunandi hópar bregðast við mismunandi áreiti, lendingarsíðum, síðuútliti eða auglýsingaherferðum. Sundurliðun má einnig framkvæma á eldri heimsóknarupplýsingum til að finna út hverjir hafa verið gróðavænlegustu gestirnir og hvað hægt er að gera til að besta síður til frekari árangurs.
   Framúrskarandi auglýsingaherferðastjórn og skýrslugerð
Nú er hægt að tengja kostnað við hvaða herferð sem er, þar með taldar CPC, CPM og CPA til að mæla árangur. Greina niður í stigveldisflokka til að skipuleggja útprentun niðurstaðna, t.d. samkvæmt greiddri leit, auglýsingaborðaherferðum, vísunaraðila eða lykilorðahóp. Hægt er að halda utan um hundruðir herferða og vista til skoðunar sem Excel, PDF og HTML svo eitthvað sé nefnt.
   Vörugreining og eftirfylgni innan vefverslunar
Fylgstu með einstaka vöru sem viðskiptavinur kaupir, hvað mikið er keypt, sölutekjur hverrar vöru fyrir sig, afsláttum, sendingarkostnaði og skatti. Það er jafnvel hægt að fylgjast með hvaða vöru viðskiptavinurinn skoðaði en keypti ekki eða hvað hann setti mikið í körfuna til samanburðar við það sem hann keypti á endanum. Þetta eftirlit má síðan greina niður í mismunandi flokka og gera skýrslur um.
Campaigns   Auglýsingahækjur og greining atburðarása
Besta leiðin til að minnka brottfall þeirra sem hófu vörukaup er að þekkja vefinn sinn. Það er best gert með atburðarásareiningu og með því að sjá fyrir hvað viðskiptavinurinn mun gera þegar inn er komið. Er verslunarferlið t.d. vitlaust uppsett? Eru formin ekki að skila sínu? Bregst viðskiptavinurinn ekki við áreiti?
  
 
Samaburðarskýrslur
Með samanburðarskýrslum er hægt að skoða mismunandi tímabil hlið við hlið og fá þannig greinargóðar upplýsingar sem bregðast má við til bestunar t.d. kaupferla eða þjónustu innan vefs.

IndexTools vefgreiningartækiðYahoo! Web Analytics vefgreiningartækið gerir stjórnendum kleift að sjá hvaðan umferðin kemur. Til að mynda hvort hún komi frá auglýsingarborðum, öðrum vefsíðum, leitarvélum, og þá hvaða leitarorð eru að skila viðskiptavinum inn á síðuna. IndexTools greinir einnig hegðun einstakra gesta inni á vefsíðunni. Til að mynda hversu lengi þeir eru inn á vefsíðunni þinni, hvað þeir skoða og hvort það leiði til viðskipta.

 

Yahoo! Web Analytics greinir hvað í markaðsherferðum er að skila sér, hvaða leitarorð eða frasar leiða helst til viðskipta og hvernig síðan virkar í heild sinni.
 
Yahoo! Web Analytics býður upp á nákvæmar, upplýsandi og viðeigandi upplýsingar á rauntíma, en þetta gefur stjórnendum tækifæri á að taka upplýstar ákvarðanir hvað varðar frammistöðu vefsíðunnar og markaðsátaks á henni.

 

Viðskiptavinir okkar nota skýrslur unnar úr IndexTools til að:

  • Hækka hlutfall heimsókna sem leiða til viðskipta, til að mynda er hægt að rekja eftirfarandi aðgerðir:
    • Kaup/sala
    • Klúbbfélagaskráning
    • Fréttabréfsskráning
    • Niðurhal skráa
    • Hversu oft er byrjað á kaupum á vöru en ekki klárað
  • Fá sem mest út úr auglýsingaherferðum á internetinu
    • Yahoo! Web Analytics kostnaðargreiningin gefur mikilvægar upplýsingar um þann kostnað sem þú eyðir í markaðsherferðir, á rauntíma. Með því til dæmis að senda rauntíma upplýsingar um hversu oft er smellt á link sem greitt er fyrir. 
    • Allar stærstu leitarvélarnar, líkt og Google, Overture, FindWhat, Lycos og fleiri,  senda upplýsingar yfir í Yahoo! Web Analytics á rauntíma um hvaða leitarorð eða frasar eru að skila sér í Pay Per Click (greitt per smell).
  • Straumlínulaga lykilslóðina að sölu
    • Rannsóknir sýna að yfir 75% allra innkaupakerra á Netinu eru yfirgefnar áður er sala á sér stað. Það sama gildir um aðrar aðgerðir á netinu svo sem klúbbaskráningu, fréttabréfsskráningu o.s.frv.
    • Yahoo! Web Analytics vettvangsgreiningartækið greinir þau skref sem þarf að taka til að viðskipti á netinu klárist. Það greinir á hvaða stigum viðskiptanna viðskiptavinir hætta við og hvert þeir fara í kjölfarið. 
    • Yahoo! Web Analytics hjálpar þér að losna við þær hindranir og flöskuhálsa sem viðskiptavinurinn lendir í við viðskiptin. Þannig ná bæði viðskiptavinurinn og þú ykkar markmiðum.
  • Rekja og greina tekjur sem skapast af Netinu
    • Tekjur eru mikilvægasta frammistöðugreiningartæki þeirra sem stunda sölumennsku á Netinu. Yahoo! Web Analytics tekjugreinirinn vinnur með innkaupakörfunni þinni og skráir hverja einustu sölu niður og aðrar tekjur tengdar henni.
    • Þetta greiningartæki gerir þér kleift að brjóta niður hvernig og hvaðan tekjurnar koma. Þetta greiningartæki gerir þér kleift að sjá hvort tekjur og heimsóknir inn á netið séu að skila sér vegna borða, tölvupóst-herferðar, tilvísana frá öðrum síðum, greiddri leit (PPC/PIC) eða venjulegri (Organic) leit á netinu. Jafnvel er hægt að brjóta niður hvaða leitarorð skilaði mestum tekjum.
  • Bæta leiðsögn um vefsíðuna og auka notkunarmöguleika hennar, finna t.d. dauð svæði.

Yahoo! Web Analytics er mjög einfalt vefgreiningartæki í notkun og gagnast vefsíðum af öllum stærðargráðum, hvort sem horft er til fjölda síðna eða heimsóknarfjölda. Hver einasta skýrsla sem kemur úr kerfinu er einföld en býr jafnframt yfir mjög nákvæmum upplýsingum.

Hvernig virkar Yahoo! Web Analytics?
Yahoo! Web Analytics er greiningartæki á Internetinu sem hjálpar þér að fylgjast með heimsóknum inn á vefinn þinn, hvaðan væntanlegir viðskiptavinir eru helst að koma og hvernig þeir haga sér inn á síðunum þínum. Þannig er hægt að greina ýmis smáatriði eins og á hvaða síðu vefurinn þinn er oftast opnaður og hvað er gert á vefsíðunni þinni.

 

 Sækja upplýsingar um Yahoo! Web Analytics á Íslensku (is)

 

Frekari upplýsingar um IndexTools og notkun tólsins

 IndexTools 8 API Viðmiðunarstaðlar Útg. 1.2 (en)

 SOAP notkunardæmi með frumkóða (en)

 Path Explorer - Plugin (Þarf að kveikja á fyrir notkun)

 IndexTools 8 Almenn notendahandbók (en)

 

Notendahandbækur Indextools

 Ummyndunargreining (Conversion Analysis), slóðagreining (Path Explorer), kvik kostnaðargreining (Live Cost Analysis), atburðarásagreining (Scenario Analysis),  Google auglýsingaherferðir (Google Adwords Campaign Tracking ) og fleira (en)

 

Annað forvitnilegt efni um teljara og vefgreiningartól

 IndexTools vs. Log greiningartól (en)
 Leiðin til vefgreiningar © Bryan Eisenberg (en)

 Vefmælieiningar viðskiptalífsins © NetGenesis Corp. (en)

 

Aðrar heimildir um Teljara og Vefgreiningu

www.emetrics.org
www.webanalyticsassociation.org
www.sma-uk.org
itresearch.forbes.com/rlist/term/Web-Analytics.html


Nordic eMarketing er umboðsaðili Indextools á Íslandi. Vertu í sambandi við sérfræðinga okkar í síma 540 9500 eða í gegnum info (at) nordicemarketing.is