Fyrirlestrar og námskeið um markaðssetningu á Internetinu
Internet ráðgjafar Nordic eMarketing hafa verið fengnir til vera með fyrirlestra og halda námskeið um markaðssetningu á netinu. Farið er í fræðilega þætti um markaðssetningu á netinu en umfram allt er lögð áhersla á að námskeiðin nýtist þátttakendum í þeirra störfum. Einnig hafa þátttakendur kost á að spyrja um hvað megi betur fara á þeirra heimasíðum en okkar reynsla er að þessi þáttur reynist fólki vel.
Meðal þess sem farið er yfir:
- Stefnumótun og uppbygging árangursríks vefs
- Greining, valmöguleikar og Innleiðing
- Markaðssetning á netinu og árangursrík uppbygging heimasíðna
- Hvernig á að skrifa fyrir netið
- Hvernig á að byggja upp ímynd á Netinu
- Leitarvélar og árangursrík markaðsetning á leitarvélum (organic vs directories og organic vs PPC/PIC)
- Tól og tæki fyrir Internet markaðssetningu (My SEO toolbox)
- Hvernig á að mæla árangur markaðssetningar á Netinu
- Markaðssetning á Netinu ? Ísland í alþjóðlegri samkeppni (Case studies)
Meðal fyrirlestra sem við höfum talað á eða haldið eru:
Ráðstefna um Internet Markaðssetningu í Smáralind 2004, þar komu fram þrír virtir erlendir fyrirlesarar, Chris Sherman (Search Wise), Shari Thurow (Grantastic designs) og Michael Holland (Microsoft). Ráðstefnan fékk mikið lof og mættu tæplega 350 manns. Við höfum síðan verið hlut af ráðstefnum Útlfutningsráðs Hagvöxtur í heimabyggð og Útflutninigsauking og Hagvöxtur sem sérfræðingar í Internet Markaðssetningu og vali á vefumhaldskerfum. Að auki höfum við talað erlendis á Search Engine Strageties og hérna heima fyrir SAF, HÍ og Háskólan á Akureyri svo eitthvað sé nefnt.
Hafðu samband og fáðu frekari upplýsingar í síma 540 9500 eða með því að senda okkur tölvupóst á info (at) Nordicemarketing.is