Samstarfsaðilar

Nordic eMarketing hefur mjög náin tengsl við góða samstarfsaðila um allan heim sem nýtast viðskiptavinum fyrirtækisins gríðarlega vel .

 

Grantastic Designs (USA)
Viðmótssérfræðingar og ráðgjafar. Fyrirtæki sem vinnur fyrir mörg stærstu fyrirtæki heims. Þau aðstoða okkur við þarfagreiningu, viðmótsprófanir á vefjum, kerfisprófanir, úttektir og ráðgjöf.


IndexTools, markaðs- og vefgreining (Int)
IndexTools er leiðandi fyrirtæki þegar vefgreiningartól eru annars vegar. Um er að ræða eitt flottasta tól sinnar tegundar, sem hjálpar viðskiptavinum Nordic eMarketing við að bæta árangur sinn og skilja bæði gæði og flæði heimsókna betur.

 

Multilingual Search (Int)
Samtök Intnernet-markaðsfólks víða um heim. Allt aðilar sem hafa yfirgripsmikla þekkingu í sínum heimalandi og eru okkar sérfræðingar á þeim málsvæðum sem þau tilheyra.

 

Search Engine Strageties (USA)
Bæði Gunnar Thorberg og Kristján Már hafa farið erlendis til að halda fyrirlestra á ráðstefnum Search Engine Strageties. Við höfum síðan boðið til Íslands fyrirlesurum sem unnið hafa með okkur þar.

 

SearchWise (USA)
Chris Sherman er eigandi Search Wise og einn af tveim lykilmönnum SearchEngineWatch.com og Search Engine Strageties. Maður sem hefur mikil áhrif í heimi Internetsins og hefur verið viðloðandi Internet markaðssetningu og þróun hugbúnaðar fyrir Netið vel yfir 15 ár.

 

Travelize (SW)
Sænskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í forritun bókunarvéla fyrir ferðaiðnaðinn.

 

Web Analytics Association

Opinber útskýring WAA á  vefgreiningu:  "Web Analytics is the measurement, collection, analysis and reporting of Internet data for the purposes of understanding and optimizing Web usage." - Opinbert alþjóðafélag vefgreina og Nordic eMarketing eru meðlimir og ráðgjafar.