Um Nordic eMarketing

Nordic eMarketing

Lykillin að velgengni Nordic eMarketing er að við eigum engar vörur sjálf og störfum sem óháðir ráðgjafar. Við vinnum með skjólstæðingum okkar í að finna það sem hentar þeim best, hvort sem um er að ræða vefumhalds-, viðskiptamanna- eða bókunarkerfi, svo eitthvað sé nefnt. Við höfum yfir10 ára reynslu af markaðs- og hugbúnaðarráðgjöf og sú reynsla nýtist viðskiptavinum okkar vel.

 

Starfsfólk fyrirtækisins hefur mikla reynslu á sviði hugbúnaðar- og Internetráðgjafar sem og yfirgripsmikla menntun á því sviði, sem hvort tveggja nýtist viðskiptavinum okkar vel. Við höfum hagsmuni skjólstæðinga okkar ávallt að leiðarljósi og reynum alltaf að finna lausnir sem leiða til hámörkunar árangurs.

 

Nordic eMarketing byggir styrk sinn á góðri þekkingu á markaðsmálum á netinu, tækniþekkingu og öflugu tengslaneti, sem gerir okkur kleyft að leita til hæfustu aðilanna til að tryggja viðskiptavinum okkar hámarks árangur á sínu sviði. Nordic eMarketing hefur það að markmiði að vinna ávallt heiðarlega og samkvæmt viðurkenndum stöðlum fyrir hönd umbjóðenda sinna. Þetta hefur reynst okkur gríðarlega vel og því höfum við aðeins frá ánægðum viðskiptavinum að segja.

 

100% árangur - Frábært track record
Okkar árangur er 100% og við höfum aðeins frá ánægðum viðskiptavinum að segja! Hafðu samband og fáðu úttekt á þinni stöðu og möguleikum til framrásar. Við höfum starfað fyrir öll stærstu fyrirtæki landsins og erum ennfremur með stóran hóp ánægðra viðskiptavina erlendis, í löndum eins og Kanada, Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Chile og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt.

 

Á Íslandi má nefna fyrirtæki og stofnanir eins og Opin Kerfi, Útflutningsráð Íslands, NAS, SAF, Icelandair Hotels, Nordic Fisheries, OgVodafone, Iceland Export Directory, Firma Consulting, Iceland Express, Víkingaþorpið ásamt hundruðum annarra sem notið hafa góðrar þjónustu og samstarfs, en fyrst og fremst góðs árangurs.

 

Lykilþættir í þjónustu okkar eru:

  • Internetráðgjöf
  • Internet Markaðssetning (Innanlands og erlendis)
  • Markaðssetning í gegn um leitarvélar (Innanlands og erlendis)
  • Viðmótsprófanir og hönnun
  • samkeppnis-, markaðs-, þarfa- og  lífsstílsgreiningar
  • Innsetning greiningartóla og úrlestur gagna úr þeim
  • Val á veflausnum eins og vefumhaldskerfum og innleiðing lausna 
  • Fyrirlestrar og námskeiðahald um markaðssetningu á Internetinu
  • Vefverslun - lausnir, uppsetning og umhald
  • Innsetning efnis og vefumsýsla
  • Þarfagreining, gerð útboðsgagna og úrlestur tilboða

Internet Ráðgjöf
Internetráðgjöf getur verið ansi margt, jafn breytilegt og þeir sem sækjast eftir slíkri ráðgjöf. Okkar reynsla hefur sýnt að mestu máli skiptir að vinna grunnvinnuna vel og taka síðan ákvarðanirnar. Hér þarf að skoða bæði innri og ytri þætti sem skipta höfuðmáli þegar á að ná árangri. Ráðgjöfin getur snúist um val á vefumhaldskerfi, vefhönnuði, val á bókunarkerfi, viðmótsprófunum, innsetningu gagna þar sem um er að ræða nokkurskonar vefstjóra til leigu, í raun allt sem hefur með Internetið að gera og þarf að leiða til árangurs.

 

Markaðssetning á Internetinu - Markaðssetning í gegnum leitarvélar
Á Internetinu leggur Nordic eMarketing áherslu á markaðssetningu í víðu samhengi. Við höfum nær 10 ára ára reynslu af hugbúnaðarráðgjöf og markaðssetningu á Internetinu og bjóðum þjónustu okkar til að kynna, markaðssetja og selja vörur og þjónustu um allan heim. Allir viðskiptavinir fyrirtækisins eru markaðssettir eftir þeirra þörfum innan Netsins. Reynsla okkar spannar allt frá einfaldri markaðssetningu innanlands til flókina markaðsrannsókna og markaðsetningar fyrirtækja svæðisbundið í Kína. Við höfum skilað árangri til viðskiptavina okkar sem mælist í vaxandi fyrirspurnum, viðskiptatengslum og sölu.

 

Viðmótsprófanir og hönnun

Við vinnum eftir viðurkenndum stöðlum með fyrirtækjum og stofnunum og notum m.a. vefgreiningartól til að finna veikleika á vefjum þeirra og hjálpa umbjóðendum okkar þannig til að ná betri árangri í samskiptum þeirra við viðskiptavini sína. Hönnun vefja skiptir miklu máli og því leggjum við mikla áherslu á að vefir séu gerðir með þarfir viðskiptavina skjólstæðinga okkar í huga. Við vinnum náið með hönnuðum við að fá fram vefhönnun sem skilar viðskiptavinum okkar þeim ávinningi sem þeir leitast við að ná í gegnum Internetið.

 

Samkeppnis-, markaðs- og  lífsstílsgreiningar

Grundvöllur árangurs er að þekkja þarfir viðskiptavina sinna og bera kennsl á keppinauta og aðgerðir þeirra. Við búum yfir þekkingu, tækjum og tólum til að vita hvernig best má ná árangri á mjög samkeppnisríkum mörkuðum. Eftir áralanga reynslu vitum við hvað þarf til að ná árangri og viðhalda honum.

 

Vefgreiningartól

Aldrei skyldi rugla saman teljara og vefgreiningartóli. Þetta er tvennt ólíkt. Í raun skiptir sjaldnast máli hvað margir koma inn á vefinn ef heimsóknirnar skila sér ekki í viðskiptum. Viðskipti þurfa ekki að fela í sér skipti á peningum og vöru, heldur geta þau allt eins verið hluti af aukinni þjónustu stofnunar eða félagasamtaka. Lykillinn að ánægðum viðskiptavini er að hann fái lausn sinna vandamála og haldi sína leið. Með réttu vefgreiningartóli má einmitt sjá þetta ferli og bregðast við.

 

Veflausnir og innleiðing þeirra

Algengustu mistök sem við sjáum fyrirtæki gera eru ekki að hanna vefinn sinn vitlaust eða skrifa rangan texta, heldur að velja rangan samstarfsaðila þegar t.d. vefumhaldskerfi er annars vegar. Við hjálpum skjólstæðingum okkar við að finna lausnina sem hentar þeim og leggjum þannig grunn að viðvarandi árangri.

 

Innsetning efnis og vefumsýsla

Innsetning gagna, þar sem um er að ræða nokkurskonar vefstjóra til leigu, er að verða æ algengara þjónustuform og við höfum í gegnum árin séð um efnistök tugi vefja. Tekið við þeim þegar vefstjórinn fer í sumarfrí eða hreinlega haldið utan um þá frá a til ö. Sem hluti af upphaflegu innleiðingarferli getur þetta verið mjög mikilvægt og verið það atriði sem endanlega hnykkir á velheppnaðri innleiðingu vefs.

 

Þarfagreining, gerð útboðsgagna og úrlestur tilboða

hvað þarf fyrirtæki þegar vefurinn er annarsvegar? Er þetta kerfi betra en hitt? Hversvegna á ég að kaupa hönnun hjá þessu fyrirtæki en ekki hinu. Netið er lítið annað en frumskógur fyrir þann sem ekki býr þar og við gerum einmitt það. Í gegnum tíðina höfum við hjálpað fyrirtækjum að finna lausnir á sínum vandamálum. Til að hugbúnaðarfyritæki viti hvaða kröfur tilboð þeirra eiga að uppfylla þurfa þau að fá greinargóð útboðsgögn frá verkkaupa. Slíkt sparar ekki aðeins tíma heldur stórar fjárhæðir þegar kaup hafa átt sér stað.

 

Besta leiðin að vel heppnuðu útboði hefst með ítarlegri þarfagreiningu og þar kemur sérþekking okkar á öllum sviðum internets og markaðsmála  í góðar þarfir.