Markaðsetning á Internetinu? Nauðsynlegur hluti af markaðsstarfi

Í dag nota að lágmarki 65% þeirra sem leita að ferðatengdri vöru eða þjónustu Internetið (samkvæmt könnun Ferðamálaráðs). Það má þó færa fyrir því sterk rök að sókn neytenda inn á Netið hafi aukist gríðarlega, sérstaklega á síðastliðnu ári. Því er enn mikilvægara en áður að vera vel sýnilegur á Netinu. Leitarvélar leika lykilhlutverk að þessu leyti því yfir 90% þeirra sem finna þig eða þjónustu þína á Internetinu gera það með aðstoð leitarvéla.

 

Góða staða á leitarvélum úrslitaatriði
Samkvæmt niðurstöðum kannana ræður sterk staða á leitarvélum úrslitum um afkomu fyrirtækja á vefnum, tekjur þeirra og markaðslega stöðu. Að finnast er samt eitt og framlína á leitarvélum er annað. Ef síðan þín kemur ekki upp á fyrstu niðurstöðusíðu leitarvélar, eða að lágmarki á þeim þremur fyrstu, má segja að þú sért ekki til í augum þeirra sem leitar.

 

Hvaða vefir skila árangri?

  • Ef þú ert t.d. með hótel í Reykjavík, farðu þá inn á t.d. Google (www.google.com), sem er langstærsta leitarvél í heimi, og sláðu inn (án tilvitnanamerkja) "hotels in Reykjavik".  Ef þú rekur hótel í miðbæ Reykjavíkur, reyndu þá "hotel in center Reykjavik" eða "hotel in downtown Reykjavik" Kannaðu niðurstöðuna.
  • Skoðaðu þann möguleika að ræða við samkeppnisaðila þína eða aðilla sem eru í rekstri sem svipar til þíns og fáðu reynslusögur.
  • Skoðaðu "Link popularity" vefsins sem tengist væntanlegum þjónustuaðila þínum. Link popularity segir til um hversu margir vefir vísa á þann aðila sem býður þér þjónustu. Link popularity er yfirleitt góð vísbending um hversu oft leitarvélar skoða vef þjónustuaðilans og hve áreiðanlegur hann þykir.
  • Fáðu tölur frá teljara; fáðu þær beint í æð og helst frá þriðja aðilla.

Allt þetta ætti að geta stutt þig við að finna þjónustuaðila sem hentar þér.

 

Randburg, Explore Iceland, Travelnet og allir hinir
Randburg hefur verið til síðan 1996. Á þessum tíma var Internetið að stíga sín fyrstu spor og því var það mikil framsýni stofnenda vefsins að hefja markaðsetningu í gegnum leitarvéla þess tíma og var með því lagður grunnur að frábæri stöðu Randburg í dag. Á Randburg koma um 200.000* einstaklingar í mánuði og skoða tæplega 500.000 síður sem síðan skapa tæpar 6.000.000 snertur. Ótrúlega háar tölur sem nýst hafa viðskipta vinum Randburg vel í gegnum árin.

Explore Iceland er nýr vefur sem á tæpu einu og hálfu ári hefur náð því að verða næst sjáanlegasti vefurinn á eftir Randburg.com og .is og Travelnet.is**.

Travelnet þarf varla að kynna enda hefur hann verið til síðan 1996 líkt og Randburg, vefurinn er sérstaklega ætlaður ferðamönnum sem eru á leið til Íslands og hefur í gegnum tíðina skapað viðskiptavinum sínum töluverð viðskipti.

 

Ráðgjöf og fagleg þjónusta
Við hjá Nordic eMarketing höfum veitt markaðsráðgjöf og þjónustu allar götur frá 1996. Við sérhæfum okkur í Netinu og höfum rekið gríðarlega öflugar vefgáttir um margra ára skeið sem tryggt hafa íslenskum þjónustuaðilum afar sterka stöðu á Netinu. Við hvetjum þig hiklaust til að hafa samband við okkur með tölvupósti eða með því að hringja. Síminn okkar er 544 9500. Við veitum þér frekari upplýsingar án allra skuldbindinga.

 

* Samkvæmt log-teljara sem haldið er utan um af OgVodafone, Internetþjónustu. Sjá nánar http://www.randburg.com/is/stats/
** Samkvæmt könnun sem gerð er bæði af þriðja aðilla og okkur í hverjum mánuði