Markaðssetning á InternetinuMarkaðssetning á Internetinu
Oftast hefst vefvæðing á því að hannað er útlit, efni sett inn á síður og í framhaldinu er lagt af stað að finna bestu leiðina til að fá umferð inn á vefinn. Útfrá leitarvélabestun er þetta ferli rangt og leiðir til lélegs árangurs. Oft hefur það verið sagt að hanna eigi vefi út frá þeim sem koma til með að nota vefinn en ekki síst á að hanna hann út frá þörfum leitarvélana. Þar sem ljóst er að stærstur hluti umferðar inná nær alla vefi á sér upptök á leitarvélum er afar mikilvægt að horft sé til allra hönnunarþátta strax í upphafi og að ferlið sé í réttri röð.

Með vaxandi notkun Internetsins hefur mikilvægi vefleitarvéla orðið æ ljósara. Þegar stjórnendur fyrirtækja upplifa að vaxandi hluti fyrirspurna, og jafnvel uppruni viðskiptatækifæra, á rætur sínar að rekja til Internetsins rennur yfirleitt upp sú staðreynd að fyrirtæki gætu gert mun betur á Netinu, enda yfirleitt um afar vannýtt tækifæri að ræða. Samkvæmt nýlegum könnunum nota vel yfir 75% þeirra sem vafra um Netið leitarvélar til finna þá vöru og þjónustu sem þörf er á hverju sinni. Í dag þykir ekkert sjálfsagðara en að eiga bankaviðskipti, telja fram til skatts, kaupa vörur, hlusta á útvarpið og bóka flug eða gistingu á Netinu. Því geta fyrirtæki sem ekki eru með vef átt á hættu að missa af lestinni.

Gott vefumsjónarkerfi
Gott vefumsjónarkerfi getur ráðið úrslitum um hvernig vefur spjarar sig á leitarvélum. Fyrirtæki sem ætla sér að nýta Netið til framrásar verða að vanda valið til að fjárfestingin skili sér (ROI). Það er því afar mikilvægt að kaupendur vefumsjónarkerfa kynni sér hjá hugbúnaðarsalanum með hvaða hætti kerfin vinna með leitarvélum.