Hvað er betra en að hefja árið með því að auka umferð og viðskipti í gegnum vefinn? Vefurinn er orðinn lykill að góðri stöðu og aukinni sölu og það er nauðsynlegt að hönnun vefsins ná fram öllu því besta sem leitarvélar þurfa til að ná aukinni umferð þar í gegn.

Til að vefurinn nái marki sínu þarf hann að innihalda gott, lýsandi efni, notendavænt viðmót og rökréttu flæði. Auk þessa verður þú að taka tillit til leitarvélanna, sérstaklega ef þú vilt ná góðri stöðu þar og ná þannig inn á vefinn þinn umferð sem skapar þér umferð um vefinn, umferð sem síðan skapar þér viðskipti og allt frítt.

Það er samt nauðsynlegt að hafa í huga að góð staða á leitarvélum Internetsins ein og sér gerir lítið, sérstaklega ef hönnun vefsins er léleg og slegið hefur verið til hendi í þeirri deild. Á sama hátt getur vel hannaður vefur ekki gert nein kraftaverk ef engin veit af honum.

Aðeins um hönnun
Þau mistök sem oftast eru gerð byggjast upp á því að eigandinn einblínir á að gera vefinn "fallegan" með hreyfimyndum, tökkum, myndum og ofvöxnum bakgrunnum sem ætla aldrei að klára niðurhölun og notandinn gefst upp á biðinni. Það sem eigendur og/eða hönnuður gleyma að reikna með er allt þetta er tilgangslaust ef vefurinn inniheldur lítið efni, flókna notendastýringu og ?viðmót ásamt órökréttu flæði þess efnis sem er inni.

Í fyrsta lagi verður hönnuðurinn að átta sig á því að það er ekki hægt að gera allt fyrir alla, allstaðar. Hannaðu vefinn þinn með heildarútlit og markaðssetningu í huga. Taktu tillit til þess efnis sem þú átt fyrir eins og lógo, bréfsefni og/eða auglýsingar sem þú hefur gert í öðrum miðlum. Reyndu að halda heildar yfirbragði. Ef þetta er ekki til, þá er kannski komin tími til að hanna heildarhugmynd að útliti og markaðssetningu fyrirtækisins. Þegar þú ert komin á það stig að vefurinn hefur verið hannaður, þ.e.a.s. útlitið er gott að vera búin að teikna upp flæði vefsins, hvert á hver síða að leiða? Hvað á viðskiptavinurinn að fá út úr vefnum? Hvað ertu að bjóða?

Ekki flækja vefinn með tenglum hingað og þangað án nokkurs sjáanlegs tilgangs, það bara ruglar. Reyndu frekar að leiða viðskiptavinin þangað sem þú vilt að hann fari, finndu út þitt ?kallað til aðgerðar? (Call to Action).  Ótrúlega margir eru t.d. bara að leita af símanúmeri til að geta hringt.

Passaðu þig á Pop-up gluggum. Flestum finnst þeir þreytandi og hver rannsóknin á fætur öðrum sýnir að þeir gera yfirleitt ekkert auk þess sem að töluverð aukning er á notkun ?Pop-up blocker? tóla sem stoppa slíka glugga strax í fæðingu.

Gott efni er lykillinn. Komdu með gildar og góðar upplýsingar og ekki reyna að ná athygli út á eitthvað sem þú ert ekki. Ef þú ert með Hótel á vestfjörðum þá hefur þú ekkert með að fá umferð út á Hótel á Vík eða Seyðisfirði. Það er bara pirrandi fyrir notanda vefsins og leitarvélarnar gætu refsað þér með stöðulækkun.

Reyndu að hafa upplýsingar sem ekki er hægt að fá annarsstaðar, reyndu að hafa umfjallanir eða vera með fréttabréf og reyndu að hafa það frítt. Gefðu notandanum ástæðu til að koma aftur og aftur og?..

Að byggja upp umferð
Vandamálið við Internetið er hraðinn, þróunin er rosaleg og ef þekking er ekki uppfærð hratt og reglulega gætir þú misst af lestinni. Það er samt sitthvað sem aldrei fer úr umferð og það er gott efni og einfalt viðmót sem auðvelt er að leiða sig áfram í gegnum. Stærstu leitarvélarnar koma með 90% af allri umferð sem kemur í gegnum leitarvélar og þegar notkun þeirra er næst á eftir tölvupóst er ekki skrýtið að undirstrika þurfi mikilvægi þeirra. Sérstaklega þegar fjórir af hverjum fimm Internetnotendum nota leitarvélar daglega. Þó að auðvitað eigi ekki að byggja eingöngu upp á umferð í gegnum leitarvélar má ekki horfa fram hjá þeirri staðreynd sem fram kemur hér að ofan. Það að fá umferð inn á vefinn umfram það sem þú færð t.d. í gegnum hefðbundnar auglýsingar er alltaf frábær viðbót.

Lénanöfn
Reyndu að velja lénanafn sem inniheldur lykilorð sem skipta miklu máli. T.d. ef þú ert með leitarvél er sniðugt að láta lénið vera finna.is segir töluvert ekki satt?

Lykilorð og frasa
Til að finna út hvaða lykilorð tilheyra þér, það skiptir mjög miklu máli að þau sé rétt valin. Til dæmis ef þú vilt ná árangir í sölu á verkuðum fisk á erlendum markaði er orðið fish ekki nóg. Þú verður að finna þá leitarfrasa sem væntanlegir viðskiptavinir eru að nota og leiða til viðskipta. Það töluveðrur munur á því að fá inn 15 ára táningsstelpu sem er að leita af nýju fiskabúri eða innkaupastjóra verslunarkeðju sem er að leita af nýju fiskheildsala sem selur ferskan verkaðan fisk.

Hver síða vefs er forsíða vefsins gangvart leitarvélum og það er ekkert við því að gera. Leitarvélin reynir að koma notandanum beint inn á þá síðu sem hún telur mikilvægasta fyrir hann gangvart þeirri leit sem hann framkvæmdi. Enda væri það hálfgerð vitleysa ef leitarvélin sendi notandann alltaf á forsíðuna og sú síða sem hann væri að leita af vær fjögur lög niðri. Of mörg klikk og væntanlegur viðskiptavinur er farinn annað.

Reyndu að skrifa texta þannig að mikilvægustu leitarorðin sé efst og það sem skiptir mestu máli sé í <H> tagi og það allra mikilvægasta í titil-taginu. Nú er bara spurningin hvort að nafn fyrirtækisins sé mikilvægast? Svo er það sprungin um META-tögin lykilorð og lýsing, flestar leitarvélar horfa fram hjá þeim en það er góður siður að hafa þau alltaf virk.

Tenglavinsældir
Eitt af því sem leitarvélar nota til að meta vefinn þinn er tenglavinsældir hans og hvernig þær tenglavinsældir eru. Hér skipta gæði meira máli en fjöldi. Þessu má ná fram á nokkra vegu, ein leiðin er að fara í massífa tenglaskiptiherferð við aðra vefi. Skoðaðu vel þá síðu sem þú ert að skiptast á tenglum við, vertu viss um að síðan uppfylli þær kröfur sem hafa verið taldar upp hér að ofan auk þess sem þær hafi PR hjá Google upp á lámark einn.
Athugaðu líka hvort þessi vefir séu á refsilista hjá leitarvélunum, það erfist oft á milli vefja.

 

Vefgreining
Einn af lykilþáttum þess að ná árangri er að vera með góðann teljara og þá er Teljari ekki það sama og teljari. Við kjósum að kalla þetta vefgreiningartól því þú þarft að vita mun meira um vefinn þinn en hvað margir koma inn. Góð vefgreining er lykilatriði að góðum árangri á Netinu.

Annað sem er gott að gera
Hafðu "Senda vini" og "Bókamerktu þessa síðu" takka á vefnum það gefur notandanum einfalda leið til að senda áhugavert efni áfram og bókamerkja það til að geta á einfaldan hátt komið aftur.

Vertu með vefkort (Site Map). Vefkort hjálpa ekki aðeins notandanum að finna leið sína heldur hjálpa leitarvélum að vafra um vefinn og skrá efni hans inn í gagnagrunn sinn. Reyndu að hafa tengil í vefkortið af öllum síðum vefsins. Annað sem getur hjálpað eru brauðmynslur (Bread Crumbs) þær þjóna sama tilgangi og vefkort nema að þú getur stýrt betur lykilorðatenginum í þeim.

Ein ábending að lokum ekki gleyma vefnum þínum, einn lykillinn að því að hann haldi vægi er að hann breytist oft og sé lifandi.

Notaðu árið 2006 til að ná árangri á Internetinu