25. nóvember 2009
Vefurinn skapar verðmæti - Ráðstefna
Framundan er hjá Útflutningsráði ráðstefnan "Vefurinn skapar verðmæti" á henni verða erlendir og innlendir fyrirlesarar auk þess gestum gefst kostur á að ræða við framkvæmda- og markaðsstjóra sumra stærstu fyrirtækja landsis. Ráðstefna haldin þriðjudaginn 1. desember á Hilton Reykjavík Nordica kl. 9.00-13.00 þar sem fjallað er um sölu á internetinu.
Fundarsetning er í höndum Jóns Ásbergssonar, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs og mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra ávarpa gesti.
Tækifæri á vefnum ? fulltrúar ólíkra fyrirtækja segja frá árangursríkum leiðum við sölu á netinu:
Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri 66°Norður
Sófus Gústavsson, eigandi Nammi.is
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair
Nathan Richardsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs CCP Games
Ragnar Th. Sigurðsson, eigandi Arctic Images
Kaffihlé ? Fundargestum gefst tækifæri til að spjalla við fyrirlesara og fræðast frekar um leiðir til að selja á netinu
Rob Snell, Yahoo Store! For Dummies
It?s simple to sell online - It?s just a question of starting
Rob er aðaleigandi Snell Brothers, ráðgjafafyrirtækis sem sérhæfir sig í sölu á netinu. Hann mun segja frá víðtækri reynslu sinni af hönnun, þróun og markaðssetningu netverslana sem velta milljónum dollara á ári.
Léttur hádegisverður og spjall við fyrirlesara.
Aðgangur er ókeypis.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku á utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000, einnig hægt að skrá þátttöku hér fyrir neðan.
Nánari upplýsingar veita Elsa Einarsdóttir, elsa@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson, hermann@utflutningsrad.is.
Til baka