4. september 2009

Starfsmanni Nordic eMarketing boðið að tala á Ráðstefnu í New York og Stokkhólm

Kristjáni Már Haukssyni hefur verið boðið að tala á SMX ráðstefnum bæði í New York og Stokkhólmi. Ráðstefnan er ein sú virtasta í sínum geira og er hún fjölsótt af þeim sem koma að markaðssetningu á Internetinu. Kristján Már mun að þessu sinni ræða um notkun fréttamiðla á Netinu við gagnaöflun og notast þar við gögn sem Nordic eMarketing hefur safnað síðan fyrir bankahrunið í 2008.

Nánar má lesa um ráðstefnuna í New York á SMX (Search Marketing Expo) East og um ráðstefnuna í Stokkhólmi má lesa hérna SMX (Search Marketing Expo) Stokkhólmi

Nánari upplýsingar veitir Hreggviður Magnússon, Framkvæmdarstjóri Nordic eMarketing í síma 540 9500



Til baka